Þar sem fortíð og framtíð mætast
Íslensk tónlistarhátíð
ErkiTíð tónlistarhátíð var stofnuð árið 1994 á 50 ára afmæli íslenska lýðveldisins. Markmið hátíðarinnar hefur ávallt verið að tengja saman tónlist, tækni, vísindi og önnur listform saman og skapa rými þar sem fortíð og framtíð mætast. Á dagskrá hátíðarinnar má finna fjölbreytta tónlist þar sem nýjungar í tækni og tónlist renna saman í eitt. Sem dæmi má nefna tónlist sem er búin til með gervigreind þar sem tónsmíðarnar eiga sér stað í rauntíma, tónlist í sýndarveruleika og samruni tónlistar og ljósahönnunar í rauntíma.
ErkiTíð hefur einnig tekið þátt í uppbyggingu nýs gagnagrunns fyrir íslenska tónlist, verið hluti af ótal verkefnum sem koma að tónlistarupptökum og tónlistarútgáfum, komið að tónlistar- og tæknimálþingum, framleitt myndefni með raftónlist ásamt því að þróa hugbúnað fyrir tónsköpun.
Árið 2023 hlaut ErkiTíð Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir bestu tónlistarhátíð ársins.
Næsta hátíð ErkiTíð mun fara fram 9.-11. Október 2026 í Reykjavík
Þema ErkiTíðar 2026 er fjölbreytileiki