
Kjartan Ólafsson
ErkiTíð
Tónlist, nýsköpun og tækni -
tengjast á íslenskri tónlistarhátíð
ErkiTíð 2026 verður haldin í Reykjavík 9.-11. október. Eitt af áhersluatriðum hátíðarinnar í ár verður módernismi á Íslandi á síðustu öld. Reykjavíkurakademían verður í samstarfi við ErkiTíð með alþjóðega ráðstefnu um módernisma á íslandi þar sem farið verður yfir og fjallað um íslenska tónlist frá þessum tíma (1950-1980).
Á þessu tímabili varð bylting í vestrænu tónlistarlífi þar sem gömul gildi fæddu af sér ný gildi og mótuðu ný listræn viðmið til framtíðar.
Á meðal frumherja má nefna Stockhausen, Boules,The Beatles, John Cage og á Íslandi þá Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Jóhann G. Jóhannsson, Trúbrot og Magnús Blöndal. Flutt verða fljölbreytt tónverk frá þessu tímabili.
Þá má nefna tónleika með hughrifstónlist, raftónlist þar sem m.a. nýrri tækni með gagnvirkni verður beytt, kammertónleika og sérstaka heiðurs- og minningartónleikar með kórverkum eftir Jón Ásgeirsson þar sem margir af fremstu kórum Íslands koma fram.
Einnig verður frumflutt kantatan „Á jörð ertu kominn” eftir Gunnar Reyni Sveinsson frá 1972 við texta eftir Birgi Sigurðsson
Þá er kallað eftir nýjum tónverkum m..a. með tilvísun í tímabil módernismans á Íslandi og þá hugmyndsfræði sem fylgdi henni.
Tónlistarhátíðin ErkiTíð er vettvangur fyrir sköpun og tjáningu í tónlist með nýrri tækni og opnar sýn inn í framtíðina, með sterkri viðspyrnu í verkum frumherja íslenskrar tónlistar.
ErkiTíð hefur frá upphafi lagt mesta áherslu á íslenska ftónlist og nýsköpun á því sviði. Hún var fyrst haldin árið 1994 af tilefni Lýðveldisafmælis Íslands þar sem fluttar voru allar helstu raf- og tölvutónsmíðar íslenskra tónskálda frá upphafi.
Í gegnum tíðina hafa tugir nýrra íslenskra tónverka verið samin og frumflutt að tilhlutan ErkiTíðar.
Á hátíðinni í ár verður lögð áhersla á rauntima tónsköpun með nýjum aðferðum og nýjum hljóðfærum - þar sem boðið er upp á hið óvænta í tónsköpun í lifandi listflutningi.
Tónlistarhátíðin ErkiTíð er opin fyrir alla óháð kyni, aldri eða uppruna. Eitt af aðalmarkmiðunum hefur verið að tengja saman fortíð, nútíð og framtíð. Þá er veigamikill þáttur ErkiTíðar nýsköpun á sviði tónlistar þar sem mörk á milli listgreina er oft máð út og sem skapar fjölbreyttari menningu.
Með fjöbreytileika sínum eflir ErkiTíð menningu og mannlíf Íslands og stuðlar að litríkara menningarlífi hverju sinni.
Kjartan Ólafsson, listrænn stjórnandi
ErkiTíð 2026
Kammerjass- og kórtónleikar
09. október
20:00 - 21:30
Fríkirkjan í Reykjavík
Föstudagur 09.10. - 20:00 - 21:30
Miðaverð 4.900 kr.
Eldri borgarar og öryrkjar 2.900 kr.
Miðasala við inngagninn og á tix.is
Frítt fyrir námsfólk // Hjólastólaaðgengi
Kammerjass og kórtónleikar
Á jörð ertu kominn” 1972. - Frumflutningur
Jazzkantatan ,,Á jörð ertu kominn" eftir Gunnar Reyni Sveinsson við texta Birgis Sigurðssonar.
Flytjendur
Kammerkórinn Röst AK ásamt Cantoque Ensemble og Jazzbandi Kjartans Valdemarssonar, sem jafnframt annast útsetningar.
Einsöngvarar eru Hallveig Rúnarsdóttir og Fjölnir Ólafsson.
Jazzbandið skipa Haukur Gröndal saxafónn, klarinett og flauta, Gunnar Hrafnsson bassi, Pétur Grétarsson trommur og vibrafónn og Kjartan Valdemarsson píanó.
Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson.
Verkið var samið árið 1972 fyrir Listahátíð í Reykjavík en vegna fráfalls einleikarans Viðars Alfreðssonar féll flutningurinn niður. Hilmar Örn var persónulegur vinur tónskáldsins og gaf hann honum handritið að verkinu með bón um að klára verkefnið. Hilmar Örn flutti hluta verksins á Jazzhátíð með Kammerkór Suðurlands árið 2006. Verkið verður nú frumflutt í heild sinni á ErkiTíð í október.
ErkiTíð 2026
Hughrifstónleikar
10. október
13:00 - 13:45
ErkiTíð 2026
Raftónleikar
10. október
14:30 - 16:00
ErkiTíð 2026
Kammertónleikar
10. október
17:00 - 19.00
Listasafn Reykjavíkur
Laugardagur 10.10. - 13:00 - 13:45
Miðaverð 3.000 kr
Eldri borgarar og öryrkjar 2.000 kr
Miðar við innganginn og á tix.is
Frítt fyrir námsfólk // Hjólastólaaðgengi
Hughrifstónleikar - TRPTYCH
TRPTYCH hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 2015. Verkefnið byrjaði sem lifandi teknóhljómsveit en hefur með tímanum þróast í nokkurs konar heimstónlist þar sem órafmögnuð hljóðfæri á borð við flautur, didgeridoo & djembe mæta rafrænum hljóðheimi. Úr þessu verður sérstakt, kosmískt & draumkennt andrúmsloft.
Hér mætast fornir tónlistarstraumar og nútímaleg hljóðvinnsla, Afrískir taktar, áhrif frá Mið-Austurlöndum & Asíu fléttast saman við rafræna tóna, söng, spuna & skapa tónlistarheim sem erfitt er að setja í einn ákveðinn flokk. Tónlistin er bæði jarðbundin & ójarðnesk, kunnugleg en óvænt.
TRPTYCH mun flytja spunakennd lög af plötunum „Ajna“ (2024), „Heartbeats & Starseeds“ (2025) og nýjasta verkinu „CREATION“ (2026). Verkefnið hefur komið fram á tónleikum & viðburðum hér á landi sem & erlendis & heldur áfram að þróast í gegnum lifandi flutning, spuna & samstarf við ólíkt listafólk.
Þegar TRPTYCH kemur fram opinberlega er verkefnið skipað Daníel Þorsteinssyni, áður úr Maus & Sometime, ásamt söngkonunum Ingibjörgu Stefánsdóttur & Kolbrúnu Ýr.
Listasafn Reykjavíkur
Laugardagur 10.10. - 14:30 - 16:00
FRÍTT fyrir öll // Hjólastólaaðgengi
Raftónleikar - módernismi
Ný og eldri raftónlist í tengslum við móderníska tímann á Íslandi 1950-1980
Efnisskrá
Magnús Blöndal: Surtur fer sunnan - myndband
Atli Heimir Sveinsson: Búr
Snorri Sigfús Birgisson: Ad Aborem Inversam
Þorsteinn Hauksson: Nýtt verk
Listasafn Reykjavíkur
Laugardagur 10.10. - 17:00 - 19:00
Miðaverð 3.500 kr.
Eldri borgarar og öryrkjar 2.900 kr.
Miðasala við inngagninn og á tix.is
Frítt fyrir námsfólk // Hjólastólaaðgengi
Kammertónleikar
Caput flytur tónlist tengda Módernisma á Íslandi
Tónleikanir eru í samvinnu við ráðstefnu Reykjavíkurakademúnnar um módernisma á Íslandi á síðustu öld.
Öll verkin sem verða flutt á þessum tónleikum eru samin milli 1960 og 1980. Þetta var gullöld framsækinnar tónlistar á Íslandi. Tónskáld tóku ekkert tilliti til íhaldssamra áheyrenda og sömdu oft á tíðum tónlist sem reyndi mikið á flytjendur.
Flest þessara verka hafa heyrst örsjaldan, t.d 15 Minigrams Magnúsar Blöndals og Klasar Leifs Þórarinssonar. Þetta eru nýstárleg tilraunaverk frá fyrstu árum sjöunda áratugarins. For Reneé og Klif mætti telja til „klassískra“ verka íslenskrar framúrstefnu. Verk Karólínu Eiríksdóttur og Hjálmars H. Ragnarssonar eru frá lokum umrædds tímabils, samin á námsárum þeirra í Bandaríkjunum.
Tónverk Jóns S. Jónssonar hafa að líkindum ekki verið flutt á Íslandi í meira en 60 ár.. Sextettin Traynour (1961) var eitt þeirra verka sem hann lagði fram sem doktorsverkefni við Northwestern Háskólann í Illinois. Hann fæddist á Ísafirði árið 1984, kenndi lengst af tónsmíðar við Bandaríska háskóla og lést í Nýju Mexico árið 2005. Það er löngu kominn tími til að rödd hans hljómi á ný.
Efnisskrá
Hjálmar H. Ragnarsson: Í svörtu og hvítu fyrir einleiksflautu
Magnús Blöndal Jóhannsson: 15 Minigrams fyrir flautu, óbó, klarínett og fagott
Atli Heimir Sveinsson: Klif fyrir flautu, klarínett og selló
Þorkell Sigurbjörnsson: For Renée fyrir flautu, píanó, slagverk og selló
Karólína Eiríksdóttir: IVP fyrir flautu, fiðlu og selló
Leifur Þórarinsson: Klasar fyrir píanó Jón S. Jónsson:
Traynour fyrir flautu, horn, píanó, slagverk, fiðlu og selló.
Flytjendur
Steinunn Vala Pálsdóttir, flauta
Eydís Franzdóttir, óbó
Grímur Helgason og Guðni Franzson, klarínett
Bryndís Þórsdóttir, fagott
Emil Friðfinnsson, horn
Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanó
Steef van Oosterhout, slagverk
Zbiegniew Dubik, fiðla
Sigurður Halldórsson, selló
ErkiTíð 2026
Tilraunatónleikar
11. október
13:00 - 14:00
ErkiTíð 2026
Raftónleikar
11. október
15:00 - 16:30
ErkiTíð 2026
Kórtónleikar
11. október
16:00 - 18:00
Listasafn Reykjavíkur
Sunnudagur 11.10. - 13:00 - 14:00
FRÍTT fyrir öll // Hjólastólaaðgengi
Tilraunatónleikar - með aðstoð tónleikagesta
Tónleikar þar sem áheyrendur koma og semja sína eigin tónlist. Nýrri tækni er beitt til rauntíma samningu tónlistar - aðferðafræði sem var upphaflega þróuð af NASA á sínum tíma til að stýra geimförum og tunglbílum.
Tónleikagestir koma með stuttar tónhugmyndir sem útfærðar verða og notaðar sem efniviður tónsköpunar – samdar og fluttar í rauntíma á tónleikum.
Listasafn Reykjavíkur
Sunnudagur 11.10. - 14:00 - 15.30
FRÍTT fyrir öll // Hjólastólaaðgengi
Raftónleikar
Ný og eldri raftónlist í tengslum við móderníska tímann á Íslandi 1950 - 1980.
Efnisskrá
Hans-Peter Stubbe Teglbjærg”: Havblik
Helgi Bjarnason: Flûte à bec dans une grotte électrique
Marten Meijboom: Tvísynth
Langholtskirkja
Sunnudagur 11.10. - 16:00 - 18:00
Miðaverð: 3000 kr.
Eldri borgarar og öryrkjar 2.900 kr.
Miðasala við inngagninn og á tix.is
Frítt fyrir námsfólk // Hjólastólaaðgengi
Heiðurs og minningartónleikar Jóns Ásgeirssonar - Tónlist sem lifir
Efnisskrá
Á meðal tónverka eru:
Stemmur
Maístjarnan
Hjá lygnri móðu
Vísur Vatnsenda-Rósu
Sofðu unga ástin mín
Flytjendur
Háskólakórinn, Kvennakór Reykjavíkur, Kammerkórinn Huldur, Skólakór Kársness, Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, Karlakórinn Fóstbræður, Gradualekór Langholtskirkju.
Heiðurs- og minningartónleikar þessir eru tileinkaðir Jóni Ásgeirssyni tónskáldi, kennara og hljómsveitarstjóra, manni sem markaði djúp spor í íslenskt tónlistarlíf á löngum og fjölbreyttum ferli.
Jón Ásgeirsson fæddist á Ísafirði árið 1928 en bjó lengst af í Reykjavík. Hann var afkastamikið tónskáld, ötull útsetjari, kennari og stjórnandi og hafði mikil áhrif á margar kynslóðir íslenskra tónlistarmanna. Í verkum hans er að finna sterka tengingu við íslenskan menningararf, þjóðlagið og íslenskan kveðskap. Jafnframt býr þar yfirvegað og persónulegt tónmál sem gerir tónlist hans auðþekkjanlega og markar henni sérstakan sess í íslenskri tónlistarsögu.
Kórtónlistin var stór hluti af sköpunarverki Jóns. Hann samdi bæði frumsamin kórverk og útsetti íslensk þjóðlög og eigin sönglög af næmni og smekkvísi. Þannig vakti hann ekki síst athygli á þjóðlagaarfinum, bjó honum listræna umgjörð og gerði að lifandi hluta af íslensku tónlistarlífi.
Efnisskrá tónleikanna sýnir margar hliðar á list Jóns. Þar er að finna fjölbreytt lög fyrir blandaða kóra, karlakóra og kvennakóra, að ógleymdum lögum fyrir barnakóra sem hann sýndi mikla ræktarsemi.
Auk fjölbreyttra kórlaga samdi Jón sönglög, óperur, hljómsveitarverk, balletta og kammertónlist. Lög hans hafa sungið sig inn í vitund þjóðarinnar, í kirkjum og tónleikasölum, við hátíðleg tækifæri og á kyrrlátum stundum og munu vafalaust hljóma þar um ókomna framtíð.
Samsöngur kóranna og allra viðstaddra
Maístjarnan og Hjá lygnri móðu við ljóð Halldórs Laxness eru meðal þeirra laga Jóns sem hafa öðlast sérstakan sess í hugum Íslendinga. Þau urðu til í tengslum við sviðstónlist hans við Hús skáldsins árið 1982 og hafa síðan lifað sjálfstæðu lífi.
Í Vísum Vatnsenda-Rósu og Sofðu unga ástin mín snýr Jón sér að íslenska þjóðlaginu. Útsetningar hans bera vitni um virðingu hans fyrir efniviðnum en jafnframt vilja til að móta hann fyrir kórinn. Þannig verður tónlistin brú milli liðinna kynslóða og samtímans.